Gleđilegt ár...
Gleðilegt ár...
Jæja maður búin að belgja sig út af góðum mat alla jólahátíðina og kvöld verður sko fiskur í matinn á þessum bæ
En hef svosem ekki frá miklu að segja,en við fengum allveg frábærar jólagjafir,og auðvita frábæran mat...Gunnar Björn er lasin og er búin að vera það síðan 27 des en hann fékk sýklalyf í dag svo að hann fer vonandi að jafna sig...ég byrja í skólanum í næstu viku og bara allt að gerast...Og já ett en,ég skrifaði eingin jólakort í ár svo að ég óska öllum gleðilegra jóla(það sem eftir er af þeim)
Bróðir hans pabba og frú fengu fyrsta barn ársins 2008 og óska ég þeim innilega til hamingju með litlu snúlluna
En nóg í bili,ég reyni að taka hintum og vera duglegri við bloggheiminn.....
AĐ SETJAST AFTUR Á SKÓLABEKK....
jæja ég eiginlega veit ekki til hverss ég er að vera með þessa síðu en hér kemur smá blogg...Eftir áramót er loksins komið að því að kelan ættlar að skella sér í nám,ég er semsagt að fara í dreifinám frá Borgarholtsskóla að læra Félagsliðan sem er 2 ára nám og reyndar þarf ég að taka með skólanum 230 tíma í starfstengdum námskeiðum en þau námskeið gilda sem 17 einingar af skólanum.Ég er reyndar aðeins byejuð að safna mér námskeiðistímum,var að ljúka 16 stunda skyndihjálparnámskeiði og á mánudaginn fer ég á 4 tíma námskeiði í samskipti á vinnustað...En þar sem að ég hef ekki stundað nám síðan í grundskóla og að nám mitt þar var svona ekki beint áhugavert og ekki stundað nógu vel þá kvíður mig svolítið fyrir,svo að öll hjálp verður tekin fagnandi...En að öðru þá er ég bara í jólaundirbúningi bæði heima og í vinnuni...ég er þó longu búin að setja upp seríur og í gær keifti ég nokkrar jólagjafir...í morgunn fór ég með litla strumpinn minn í jólaföndur í leikskólanum og það var sko fjör þar...ætla að hætta í bili og fara að koma strumpnum mínum á fætur(aftur)en bless í bili....
íbúđ til leigu.......
3 herbergja íbúð til leigu á Skagaströnd...upplýsingar í síma 4535504 eða 8691248
sumarfríiđ búiđ
Hún elsku systir mín á stór afmæli í daqg og er orðin 30 ára gömul
,elsku Ragga systir innilega til hamingju með daginn
...En svo að ég snúi mér nú að öðru þá er sumarfríið okkar búið en þettaq var bara mjög gott frí í alla staði,en ég byrjaði að vinna út í Iðju á þriðjudaginn og er það bara mjög fínt en þetta er frekar rólegt núna fram á haust,en í haust þegar allir eru komnir úr fríi þá kemst þetta aftur í vetrardagskrá,og þá er meininginn að ég taki við vinnustofuni og hafi yfirumsjón með henni og þeirri vinnu sem þar fer fram og verður það öruglega bara gaman...í þessum töluðu orðum eru tveir 3 ára guttar á fullu hér því að Viktor Franklín er í heimsókn en í kvöld er svo afmælispartý hjá Röggu systir...Um 20 ágúst hættir svo Gullmolinn minn á krílakoti og fer á Furukot því að hann er orðin svo stór og getur varla kallast kríli lengur,en þær á Krílakoti sjá samt um aðlöguna uppfrá á furukoti sem er gott því að hann hefur þá einhverja komu með sér sem hann þekkjir og svo fara 4 önnur börn af kríló með honum...Á morgunn ætla ég svo að sjá til hvort að ég nenni að kíkja á Dalvík á Fiskidaginn mikla eða vera hér a´krók því að hér verður króksmót og er bærinn orðinn fullur af fólki,og bróðir hans pabba kemur til mömmu og pabba með sinn strák svo að það er nóg í boði fyrir helgina og svo næstu helgi eru kántrý dagar á ströndini og er áætlað að kíkja þangað...en gott í bili
Sumarfrí og endalausar veislur
bráđum sumarfrí.....
síđan síđast....
Ég er nörd....
Ég er allgjört nörd,ég horfði ekki á evrovision og fór ekki á kosningavöku,heldur fór ég að sofa umrættkvöld um miðnætti
Frábćr skemmtun í Rvk og fl...
Ef að það er eitthvað sem ég er búin að komast að undafarið þá er það helst að ég komst að því að allir hafa gott að því að komast út á lífið og skemmta sér ærlega,og þar sem ég geri ekki mikið af því þá skemmti ég mér bara mun betur þegar ég loksins geri eitthvað...en allavega þá kom Bjössi í land á þriðjudaginn 24 apríl,og sótti Gunnar Björn í leikskólann og hann gisti hjá honum þá nótt,en það gékk það vel að þegar ég kom um kvöldið með náttfötinn hans þá sagði hann bara við mig,mamma ég er hjá pabba sínum og ég ekki koma heim,og nánast sparkaði mér út í leiðini,á Miðvikudagsmorgunn fór Bjössi með hann til augnlæknis og allt lítur vel út nema að hann á að koma aftur til að láta ath með latt auga...Á laugardagsmorgunn ætlaði ég svo að skreppa skotferð suður til að keyra Bjössa á sjóinn en það breytisst aðeins þegar í bæinn var komið svo að það var bara pantað hótelherbergji og farið á djammið í bænum,fyrst var farið á barinn á hótelinu og fékk ég mér bjór þar,svo átti að fara að borða en fyrst ætluðum við á Italíu en þar var fullt út úr dyrum svo að við ætluðum þá á annan stað sem ég man ekki hvað heitir en þar var sama sagan svo að við enduðum á kringlukránni og fékk ég sjúklega góða lambasteik,og góða drykki og skot,þaðan var aftur haldið á hótelið í 1 bjór í viðbót og svo niður í bæ að hitta Hrefnu vinkonu sem var æðislegt,fórum á vegamót en þar var allt fullt svo að við fórum á barinn og eftir góða skorpu að drykkju og spjalli við Hrefnu,fórum við á pleyers á ball með von og var dúndur stuð þar meira að seiga náði Bjössa út á dansgólf en ég held bara hreinlega að ég geti talið það á annari hendi hvað ég hef séð hann dansa oft á þessum 6 árum sem ég hef þekkt hann,og var þetta hin besta skemmtun,eftir ballið var farið beina leið á hótelið að sofa en ég morgunhaninn var glaðvöknuð rúmlega 7,og rölti niður í morgunmat um 8 leitið,um hádegið fórum við á subbwey og þaðan í kringluna og útúr kringluni komum við með glæsilegt tvíhjól handa Gunnari Birni og nýjan hjálm líka enda minn maður mjög ágnægður með það og stoppar ekki á hjólinu enda sér hann ekki þríhjólið sitt lengur...allavega úr kringluni var haldið í kópavoginn í rúmfatalagerinn og bónus,þaðan á klúbbinn í síkó og gos og um kl 5 loksins taka bensín og bruna heim á leið...á meðan ég var í þessari ferð minnio var Gunnar Björn á Akureyri með Silló ömmu sinni í fermingarveislu og var þar 1 nótt...Allavega var komið heim um kvöldið og nánast farið beina leið í háttinn enda vinna daginn eftir...Bjössi náði svo í gunnar Björn í leikskólann á mánudag,og í dag og fóru þeir svo í kvöldsundferð áðan enda Gunnar Björn orðin svo mikill pabbastrákur að hann sér ekkert annað en pabba sinn....Á mánudagsmorgunn var ég send út að vinna með strákunum og var þar allandaginn og aðeins lengur en venjulega,það var geggjað gott veður og gaman að fá að vinna úti,sem var voðalega fínt allveg þangað til að ég vaknaði á þriðjudagsmorgunn að drepast úr vöðvabólgu og er enn mjög slæm,en í morgunn var sagt við mig eftir kaffið að ég færi aftur út eftir smá stund eða þegar bíllinn kæmi,þannig að ég klæddi mig í vindjakka og pollabuxur,og fór smástund en þá bauðst Valdís til að fara út fyrir mig í staðin,bæði vegna þess að henni langaði að prufa eitthvað nýtt og vegna þess að hún vissi að ég væri ekki góð í bakinu,svo að ég þáði það með þökkum og fór aftur inn að seila og var lang mesta fjörið á borðinu hjá okkur,mér,Gigju og Ingilríði,og sennilega vorum við hið besta útvarp fyrir hin borðin,því að margt skemmtilegt rugl og skáldskapur datt upp úr okkur...en nú er komin tími til að reyna að koma guttanum niður en hann er á fullu að hjóla um íbúðina....Bless í bili...kveðja Systir Sara Zoega
